Atvinnulíf

„Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matar­borðið“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF, segir áhugamálið vera Rubik's kubba, en hann og sonur hans ásamt fleirum fóru í fyrra til Grænlands, þar sem þeir gáfu krökkum í Nuuk 130 kubba og stóðu fyrir alþjóðlegu kubbamóti.
Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF, segir áhugamálið vera Rubik's kubba, en hann og sonur hans ásamt fleirum fóru í fyrra til Grænlands, þar sem þeir gáfu krökkum í Nuuk 130 kubba og stóðu fyrir alþjóðlegu kubbamóti. Vísir/Vilhelm

Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF finnst gaman að elda og elskar ítalska eldhúsið og að vinna með villibráð sem hann veiðir sjálfur. Pétur segir börnin sín betur kunna að meta matseldina hans nú en þegar þau voru yngri.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er venjulega kominn á fætur um sjöleytið á morgnana.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég byrja daginn á því að klæða mig og tek svo stutta hugleiðslu áður en ég fer út í bíl. 

Ég er búsettur í Hafnarfirðinum og því góður tími til þess að hringja einhver símtöl, viðskiptavinir okkar á meginlandinu vakna snemma, eða bara njóta þess að hlusta á Morgunvaktina á Rás 1 í línulegri dagskrá.

Síðustu tíu ár hef ég byrjað alla virka daga þegar það er mögulegt í litlu líkamsræktarstöðinni í Hilton Nordica. Þar notaleg kaffiaðstaða, þar sem ég tek fyrsta bolla dagsins um leið og ég fer í gegnum netmiðlana eða spjalla við æfingafélagana. Ég æfi þrjá daga í viku, hina tvo læt ég duga að fara bara í pottinn eftir góða kaffistund.“

Á skalanum 1-10, hvaða einkunn myndi heimilisfólkið gefa þér fyrir eldamennsku?

„Ég held að í dag fái ég nokkuð góða einkunn fyrir eldamennsku. Mér finnst gaman að elda, elska ítalska eldhúsið og vinn líka mikið með villibráð sem ég veiði sjálfur. 

Það er þó líklegt að einkunnin hafi hækkað með árunum, börnin mín kunna betur að meta matseðilinn minn í dag en þau gerðu þegar þau voru yngri. 

Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið. 

Helsta gagnrýnin sem ég fæ á eldamennskuna er að ég ekki til í að brytja grænmeti og salat sem ég ber fram niður í smátt. Ég vil bera það fram sem heillegast og leyfa þeim sem borðar að skera það niður sjálfur.“

Pétur segist í grunninn frekar óskipulagður og hvatvís en býr svo vel að því að eiga gott samstarfsfólk sem er með frábæra skipulagshæfileika. Enda kalli starfið oft á slíkt, ekki síst þegar unnið er með þýskum ferðamarkaði þar sem horft er langt fram í tímann og allt utanumhald þarf að vera sérstaklega vel skipulagt.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er núna að setja mig inn í hlutverk formanns Samtaka ferðaþjónustunnar sem ég tók að mér fyrir nokkrum vikum. Þetta er ekki fullt starf en í mörg horn að líta og margt sem nauðsynlegt er að kynna sér. Ég er til dæmis nýkominn úr frábærri þriggja daga ferð með starfsfólki SAF um suðurland, þar sem við heimsóttum félagsmenn okkar. Ég hef undanfarnar vikur sömuleiðis verið að hitta fólk í stjórnkerfinu sem tengist ferðaþjónustunni.

Í mínu daglega starfi erum við að byrja að undirbúa ferðaárið 2025, innkaupin eru hafin og við að taka mikilvægar ákvarðanir bæði er varða innkaupin sjálf sem og verðlagningu langt fram í tímann. Verðbólgan, vaxtastig, gengisþróun og launakostnaður hafa mikil áhrif og mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir þessa þætti þegar verð á vörum okkar er ákveðið fram til haustsins 2025. Í þessari vinnu er reynslan mikilvægust.

Til viðbótar er ég í mjög skemmtilegu verkefni sem snýst um áhugamálið. 

Í fyrra fórum ég og sonur minn ásamt vini hans og héldum Rubik’s kubba námskeið og fyrsta alþjóðlega kubbamótið í Nuuk á Grænlandi. 

Við gáfum krökkum í Nuuk 130 kubba og þetta heppnaðist frábærlega vel. 

Nú í júní erum við að skipuleggja að gera þetta aftur bæði í Nuuk og í Illulisaat. Fræið sem við sáðum þarna í fyrra varð til þess að myndaðist lítið kubbasamfélag í Nuuk sem hittist vikulega til þess að kubba saman. Við ætlum að halda áfram og stækka þetta verkefni í sumar.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég nota Google dagatalið mitt í símanum til þess að halda utanum dagana hjá mér sem geta stundum verið þétt setnir. Það sem ekki ratar í dagatalið hjá mér er í mikilli hættu á að gleymast í dagsins önn. 

Í grunninn er ég frekar óskipulagður og hvatvís og mér líkar best að horfa stutt fram í tímann og sinna þeim verkefnum sem kalla á mig á hverri stundu dagsins. 

Ég nýt þess sem betur fer að eiga gott samstarfsfólk og vera með fólk í kringum mig með frábæra skipulagshæfileika. Verkefnin sem tengjast Þýskalandi og þýska ferðamarkaðnum krefjast þess að horft sé langt fram í tímann og að skipulag og utanumhald sé gott.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég reyni að leggjast upp í rúm klukkan ellefu, eina leiðin fyrir mig til þess að “sofa út” er að fara fyrr að sofa á kvöldin.“


Tengdar fréttir

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu

Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“

Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×